Eins ótal sinnum og ég hef reynt að setja mig í endurskoðunar- og skipulagsgír í kringum áramót þá hef ég  aldrei náð því. Hefðbundin áramót er ekki minn tími fyrir slíkt.

Haustið er minn tími hvað þetta varðar. Í byrjun haustsins kemur yfir mig þessi þörf að endurskoða sjálfa mig, setjast niður og horfa fram á við. Hvernig ég sé fyrir mér hlutina í næsta kafla lífsins. Ég er ekki manneskja sem get sett líf mitt í excel, finnst það svakalega óþægilegt. Tilfinningin við að setja líf mitt í excel er eins og að vera í fangelsi. Ég þarf að sjá hlutina fyrir mér, meira myndrænt. Sjá myndræna heildarmynd. Myndbrot. Ekki orð í kassa.

Mér finnst þetta tímabil endurskoðunar og -skipulagningar geggjað skemmtilegt. Eitt af uppáhalds mínu yfir árið.

Hugurinn verður svo skýr og frjór þegar hann fær frið og frelsi til að flæða.